Heilbrigðismálin brotin til mergjar

Páll Magnússon fær til sín tvo hjúkrunarfræðinga á Þjóðbraut sína í kvöld sem báðir eiga það sameiginlegt að hafa sagt upp störfum í kjölfar lagasetningar stjórnvalda á verkfall heilbrigðisstarfsfólks á Landspítalanum.

Páll orðar það sjálfur svo að það sé aðeins eitt mál á dagskrá í dag, enda sé það eiginlega mál málanna; staða og horfur í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Í meira en hálft ár, allt frá því í desember í fyrra, hafi geysað býsna hatrammar kjaradeilur í heilbrigðiskerfinu og einhver starfsstétt staðið í verkfallsaðgerðum allan þennan tíma; fyrst læknar og nú síðast hjúkrunarfræðingar.

Til að ræða þessi mál fær Páll til sín Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og hjúkrunarfræðingana Eddu Jörundsdóttur og Höllu Þorsteinsdóttur sem báðar hafa sagt upp störfum, sem fyrr segir, en Edda er svæfingahjúkrunarfræðingur í Fossvogi og Halla starfar í gjörgæslunni á sama stað.

Þjóðbraut er frumdýn klukkan 20:00 í kvöld.