Segja heilbrigðiskerfið til skammar

Aðalfundur Pírata á Norðausturlandi fór fram 12. mars sl. Þar komu saman rúmlega fjörtíu manns frá Akureyri og nærliggjandi sveitarfélögum. Níu framboð til stjórnar bárust og hlutu eftirfarandi kosningu:

Guðrún Ágústa Þórdísardóttir formaður.

Helgi Laxdal gjaldkeri.

Einar Árni Friðgeirsson ritari.

Einar Brynjólfsson meðstjórnandi.

Hans Jónsson meðstjórnandi.

Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt: \"Fréttir af húsnæðisvanda bráðamóttöku Landspítalans eru ein af birtingarmyndum heilbrigðiskerfis sem hefur verið vanrækt árum saman. Þetta er í senn sorglegt og til skammar, enda ekki boðlegt að sjúklingar þurfi að liggja í sjúkrarúmum sínum í bílageymslu spítalans. Funduriinn skorar á ríkisstjórn landsins að gera bragarbót hið fyrsta.\"

Einnig var formlega stofnuð félagsdeild Pírata í Norðurþingi.