„Það er hins vegar enga sanngirni að finna í tillögu Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, og Kolbrúnar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins, um að vísa skýrslu Innri endurskoðunar um framkvæmdir við braggann til héraðssaksóknara. Sú gjörð lyktar langar leiðir af pólitískri heift. Offors og heift í garð pólitískra andstæðinga er ekkert nýtt,“
segir Kolbrún Bergþórsdóttir í leiðara Fréttablaðsins í dag um braggamálið. Hún segir engin rök eða staðreyndir á bak við tillögu Vigdísar og Kolbrúnar, sem einkennist af pólitískum ofsa:
„Í pólitík þykir sjálfsagt að höggva til andstæðingsins gefist á því færi. Ríkar ástæður þurfa ekki endilega að vera fyrir hendi, það nægir einfaldlega að andstæðingurinn liggi vel við höggi. Um leið er ekki tekið nokkurt tillit til þess sem er sanngjarnt eða rétt. Í hita leiksins er það ekki talið skipta neinu máli. Það á einmitt við um tillögu fulltrúa Miðflokksins og Flokks fólksins, sem byggist ekki á rökum og staðreyndum heldur á óskhyggju um misferli pólitískra andstæðinga sem þeir vilja ólmir koma frá völdum. Tillagan er þeim sem að henni standa til lítils sóma, enda ber hún fyrst og fremst vott um pólitískan ofsa.“
Nánar á