Rekin úr félaginu á síðasta ári en neitar að gefast upp - lýsir aftur yfir framboði

Heiðveig María Einarsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í stjórn Sjómannafélagsins. Frægt var þegar Heiðveigu var meinað af félaginu að bjóða sig fram, síðar var henni vísað úr félaginu.

 Heiðveig var rekin úr Sjómannafélagi Íslands vegna þess að forystumenn félagsins töldu að hún gengi erinda sósíalista og að formannsframboð hennar væri liður í yfirtöku sósíalista á verkalýðsforystunni. Þetta kom fram í skjali sem Eyjan hafði undir höndum, skjalið fylgdi  tillögu þeirra Arngríms Jonssonar, Jóns Bragasonar, Steinþórs Hreinssonar og Steinar Haralds um brottrekstur Heiðveigar Maríu úr félaginu.

 Heiðveig María hafði áður gagnrýnt stjórnina harðlega. Skjalið var myndskreytt af skjáskotum af fréttum um deilurnar í kringum framboð Heiðveigar, og var því haldið fram að framboð hennar væri liður í yfirtöku sósíalista á Íslandi, undir forystu Gunnars Smára Egilssonar, á verkalýðshreyfingunni.

 „Haustið 2017 bárust símtöl til skrifstofu Sjómannafélagsins frá Gunnari Smári Egilssyni um tímasetningu stjórnarkjörs í Sjómannafélaginu.“

Var svo rakin uppgangur Sólveigar Önnu Jónsdóttur í Eflingu, hún hafi þá talað um að SÍ væri næst.

Í febrúar síðastliðnum felldi Félagsdómur þann úrskurð að Sjómannafélagi Íslands hefði verið óheimilt að reka hana úr félaginu. Heiðveig birtir yfirlýsingu í dag á Facebook þar sem hún lýsir yfir framboði ásamt góðum hópi fólks, líkt og hún orðar það sjálf.