Heiðum aldrei lokað jafn oft

"Veðurtíðin hefur verið sérstaklega óvanaleg hér suðvestanlands eins og sést á tíðri lokun Hellisheiðinnar," segir G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í samtali við hringbraut.is. Og tölur tala þar skýru máli: Mánuðina desember, janúar og febrúar í vetur hefur Hellisheiðin verið lokuð í 15 skipti hluta úr degi, þar af 8 daga lengur en 8 tíma í senn, en slíkt henti aðeins tvisvar í fyrravetur.
G. Pétur segir að Vegagerðin verji 3,5 milljörðum króna í vetrarþjónustu en fjárveitingar til hennar hafi ekki haldið í við verðlagsþróun. Og raunar sé nokkuð langur vegur frá því; að minnsta kosti einn milljarð króna vanti í þessa mikilvægu þjónustu svo hún geti talist nálægt þeim kostnaði sem fór í hana fyrir hrun.