"Fyrirætlanir stjórnvalda um að eyðileggja heilbrigðiskerfið svo hægt verði að einkavæða það ganga samkvæmt áætlun og menningarlífið er að fjara út hægt en örugglega, svo þetta er allt á réttri leið."
Þannig komst Karl Ágúst Úlfsson að orði í inngangsorðum sínum í sjónvarpsþættinum Helginni á föstudagskvöld og fór víða í vanalegu háði sínu og spotti, enda af nógu að taka eftir glórulausa fréttaviku: "Og svo við víkjum aftur að fjárkúgunarmálum, þá er ekki annað hægt en að dást að heiðarleika íslenskra fjárkúgara, sem gefa kvittanir fyrir skilvísum greiðslum. Víðast hvar erlendis eru þessi viðskipti nótulaus, þannig að hér sem annars staðar stöndum við feti framar. Og ég efast ekki um að þær hafa líka gefið þessa greiðslu upp til skatts."
Hann hélt áfram með glotti á vör: "Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ásamt sérsveit og öllu tiltæku varaliði sat um íbúð í Kópavogi sem síðan reyndist vera mannlaus, en grunur leikur á að hún hafi verið full af álfum, huldufólki og dvergum sem hafi flúið úr Hafnarfirði. Allir fjölmiðlar landsins stóðu á öndinni á meðan á umsátrinu stóð, en það eru vinsamleg tilmæli ríkislögreglustjóra að fólk haldi sig almennt heima við við svona aðstæður svo leyniskyttur lögreglunnar hafi eitthvað til að miða á."
Enn var Karli skemmt yfir samfélagi sínu: "Yfir fimmtíu þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til forseta Íslands að staðfesta ekki lög um úthlutun á makrílkvóta til sex ára á meðan þjóðinni hefur ekki verið tryggður eignarréttur á fiskveiðiauðlindinni í stjórnarskrá. Hverju heldur þú að forsetinn svari þessari áskorun þjóðarinnar, Ingvi Hrafn," spurði Karl að lokum og skipti yfir á gamla jaxlinn með fokkmerkið á lofti.