Heiðar og Snæbjörn segja íþrótt Eyjamanna að „nauðga konum frá meginlandinu“ – Svava: „Ekki í lagi!“

„Ótengt umræðunni sem er í gangi í þjóðfélaginu þá velti því fyrir mér hvort þetta sé bara í lagi?,“ spyr íþróttafréttakonan Svava Kristín Grétarsdóttir um klippu úr útvarpsþættinum Eldur og Brennisteinn. Í þættinum, sem er útvarpað á vef Vísis, þar sem Svava starfar sjálf, ræða þeir Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson um Þjóðhátíð í Vestmannareyjum og kynferðisafbrot á hátíðinni.

„Það er eins og það sé einhver íþrótt innfæddra að nauðga konum…,“ segir annar, þá segir hinn: „…Sem koma frá meginlandinu.“

„Já, meginlandi Evrópu og meginlandi Íslands. Ef þær eru svo ölvaðar að þær geta ekki spornað við… þá er það eitthvað svona sport.“

Svava segir á Twitter að þetta sé ekki í lagi: „Að segja opinberlega að það sé þjóðarsport Eyjamanna að nauðga konum af meginlandinu? Sem dóttir, systir og vinkona Eyjamanna finnst mér þetta allavega ekki í lagi,“ segir hún. „Þeir þurfa líka að svara fyrir þessi orð sín, svo mikið er víst.“

Hér má hlusta á klippuna:

Hér má hlusta á umræðuna í heild sinni.