Hlaðvarpskóngarnir Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson biðjast afsökunar ef einhver hafi særst af ummælum um íbúa Vestmannaeyjar. Í hlaðvarpinu Eldur og Brennisteinn ræddu þeir um Þjóðhátíð í Vestmannareyjum og kynferðisafbrot á hátíðinni.
„Það er eins og það sé einhver íþrótt innfæddra að nauðga konum…,“ segir annar, þá segir hinn: „…Sem koma frá meginlandinu.“
„Já, meginlandi Evrópu og meginlandi Íslands. Ef þær eru svo ölvaðar að þær geta ekki spornað við… þá er það eitthvað svona sport.“
Ummælin voru harðlega gagnrýnd. „Að segja opinberlega að það sé þjóðarsport Eyjamanna að nauðga konum af meginlandinu? Sem dóttir, systir og vinkona Eyjamanna finnst mér þetta allavega ekki í lagi,“ sagði Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttamaður.
„Vegna fréttaflutnings af nýjasta þætti Elds og brennisteins langar okkur fyrst af öllu að biðjast afsökunar á óvarfærnu orðalagi okkar í þættinum. Við áttum að gæta orða okkar betur og biðjum við alla þá sem við höfum sært innilegrar afsökunar á því,“ segir í yfirlýsingu á Facebook-síðu hlaðvarpsins.
Þeir segja að ummælin hafi verið látin falla í kjölfar umræðu í hlaðvarpinu um bloggfærslu ónefnds framhaldsskólakennara og brottflutts Vestamannaeyings sem birtist á bloggvef Morgunblaðsins. Var sú færsla lesin upp í þættinum. „Þar lýsti hann ákveðnum aðförum innfæddra í Vestmannaeyjum, sem gengu út á að nauðga öldauðum konum og lét sem þetta hefði verið eitthvað sem þar var stundað. Orð okkar voru einungis túlkun á skrifum þessa manns frá árinu 2012,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við skiljum hins vegar vel að Eyjamönnum hafi sárnað það hve óvarlega við orðuðum hlutina. Við áttum að tjá okkur af meiri varkárni og lofum að standa okkur betur í framtíðinni.“
Ljóst er að afsökunarbeiðnin fellur ekki í kramið hjá öllum og fá þeir bágt fyrir í athugasemdum. Þátturinn var birtur á vef Vísis en hann hefur nú verið tekinn úr loftinu.