Heiðar Guðjónsson fjárfestir skrifaði nýlega grein í Morgunblaðið um fjárhagsstöðu Seðlabankans en eftir 113 ma.kr. gengistap á gjaldeyrisforðanum er eiginfjárstaða bankans um 5%. Skiptir það máli eða er þetta eingöngu bókhaldslegt tap?
Við heimsækjum nýsköpunarsjóðinn Crowberry og ræðum við Helgu Valfels. Hvaða möguleika eiga sprotafyrirtæki í alþjóðlegu umhverfi og er það góð fjárfesting?
Árni Helgason lögmaður segir okkur um stöðu gengislána í dómskerfinu og hvort þessum málum fari ekki að ljúka? Af hverju hefur þetta tekið svona langan tíma?
Að lokum ræðir Pétur um ofur kaupauka í Glitni, Kaupþing og Landsbankanum og hvort það standist reglur Fjármálaeftirlitsins.
Allt þetta á Markaðstorginu á Hringbraut í kvöld kl. 20.30.