Heiða B. Þórðardóttir, systir Gísla Þórs Þórarinssonar sem var skotinn til bana í bænum Mehamn í Noregi kveðst hafa talað daglega við bróður sinn viku fyrir morðið.
Það var laust fyrir klukkan hálf sex á laugardagsmorgun að lögreglunni í Mehamn barst tilkynning um að maður hefði orðið fyrir skoti. Lögregla kom skömmu síðar á vettvang og fannst Gísli alvarlega slasaður. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var Gísli því úrskurðaður látinn á staðnum. Mennirnir tveir voru svo handteknir stuttu seinna, eftir að lögreglu hafði verið tilkynnt um bíl í skurði skammt frá Mehamn
Í samtali við Fréttablaðið lýsir Heiða Gísla sem hugljúfum og yndislegum manni. Hann hafi verið stór persónuleiki og margir syrgi hann.
„Sársaukinn er ólýsanlegur,“ segir Heiða B. í samtali við Fréttablaðið. „Þvílíkt áfall.“
Yfirvöld í Noregi hafa farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir bróður Gísla sem liggur undir grun um að hafa drepið hann. Þá er annar Íslendingur einnig grunaður um aðild að morðinu. Þeir verða leiddir fyrir dómara í dag.