Heiða systir gísla og gunnars: „ég held að þetta hafi verið hræðilegt slys en ekki morð að yfirlögðu ráði“

„Á morgun greini ég lögreglunni frá samskiptum mínum við þá bræður dagana fyrir atburðinn. Hvernig Gunnar hótaði að gera þetta og hvernig ég reyndi að tala hann ofan af því. Líka hvernig ég reyndi að vara Gísla við.“

Þetta segir Heiða Þórðar í samtali við DV í gær. Heiða er systir bræðranna Gísla Þórs Þórarinssonar og Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, þau þrjú eru sammæðra. Líkt og alkunna er varð Gunnar bróður sínum að bana í Mehamn í Noregi þann 27. apríl síðastliðinn.

\"\"

Heiða Þórðar

Gunnar hafði haft í hótunum við Gísla og Gísli meðal annars fengið nálgunarbann á bróður sinn. Dagana fyrir hinn voveiflega atburð var Heiða í sambandi við bræður sína. „Ég var til skiptis að reyna að koma vitinu fyrir Gunnar, ég reyndi að tala hann ofan af því að gera þetta. Þess á milli var ég að koma upplýsingum til Gísla og vara hann við,“ segir hún.

Heiða telur að um slys hafi verið að ræða, þrátt fyrir hótanir Gunnars um að deyða Gísla. „Ég held að þetta hafi verið hræðilegt slys en ekki morð að yfirlögðu ráði. Ég held að hann hafi vissulega ætlað að ógna honum en ekki deyða hann,“ segir Heiða. Sjálfur hefur Gunnar sagt að um hræðilegt slys hafi verið að ræða. Gísli var skotinn í lærið og blæddi út.

Upphaf hótana Gunnars í garð Gísla má rekja til þess að Gísli varð ástfanginn af barnsmóður Gunnars, Elenu Undeland, og tóku þau upp samband. Gísli var guðfaðir barna Gunnars og Elenu og sonur þeirra var skírður í höfuðið á Gísla.

„Þessi tveir snillingar voru miklir vinir. En þegar Gísli sagði við Gunnar: „Fyrirgefðu, en ég elska þessa konu,“ þá brast eitthvað í Gunnari og þessi hræðilega atburðarás fór af stað. Ég reyndi eins og ég gat að tala um fyrir Gunnari, benda honum á að hann myndi jafna sig á þessu, við værum öll fjölskylda og við myndum komast yfir þetta saman,“ segir Heiða.

Hótanirnar vöktu ótta með Heiðu og Gísla en virtust á stundum vera orðin tóm. „Við vorum jafnvel að grínast með þetta, ég og Gísli. Svona brjálaður gálgahúmor. Ég sagði til dæmis einu sinni: „Jæja, Gísli minn, gerðu nú eitthvað skemmtilegt, það er bara sólarhringur eftir.““ Heiðu var alltaf létt þegar dagarnir liðu án þess að nokkuð kæmi fyrir og taldi að Gunnar hygðist ekki framfylgja hótununum.

Innritaði sig inn á geðdeild

Viku fyrir daginn örlagaríka innritaði Gunnar sig inn á geðdeild í Noregi. „Nálgunarbannið kom 17. apríl en þremur dögum síðar fer hann sjálfviljugur á geðdeild. Hann óttaðist hugsanir sínar sem snerust um að drepa Gísla og síðan sjálfan sig. Ég frétti síðan að hann sé búinn að útskrifa sig sjálfur af geðdeildinni en hann fór þá út á sjó og þess vegna hafði ég ekki áhyggjur lengur,“ segir Heiða.

Túrinn á sjónum reyndist stuttur og Gunnar kom í land seint á föstudeginum 26. apríl. Þetta kvöld hóf hann drykkju með Almari Smára Ásgeirssyni, sem var fyrst um sinn grunaður um aðild að málinu en var síðar látinn laus. Snemma að morgni 27. apríl var Gísli svo allur, eftir að Gunnar hafði orðið sér úti um skotvopn um nóttina, að því er lögreglan í Finnmörku telur.

Hræðilegt slys

„Ég hélt fyrst að hann hafi verið skotinn í hjartað eða höfuðið þegar mér er tjáð að hann hafi verið drepinn. En skotið var í annað lærið, slagæðin brast og honum blæddi út,“ segir Heiða.

Hún á erfitt með að sætta sig við að sjúkraflutningamenn hafi ekki mátt koma Gísla til bjargar fyrr en það var um seinan. Þar sem lögregla þurfti að tryggja svæðið áður en sjúkraflutningamenn máttu fara inn til Gísla liðu yfir 50 mínútur þar til þeir gátu hafið aðhlynningu. Gísli var úrskurðaður látinn á staðnum skömmu eftir að lögreglan hafði tryggt svæðið. „Þetta er með ólíkindum og eitthvað sem er ekki hægt að sætta sig við,“ segir hún.

Heiða ítrekar að hún telji að um slys hafi verið að ræða. „Þrátt fyrir dómana sem hann hefur á bakinu þekki ég hann ekki sem þann mann sem myndi gera þetta. Ég hef aldrei séð hann sýna af sér ofbeldisfulla hegðun. Hann er viðkvæmur og með stórt hjarta. Ég veit að hann rauf nálgunarbann og fór þarna með byssu og ég veit að hann ætlaði að ógna Gísla en ég held ekki að hann hafi ætlað að myrða hann. Það verður eflaust allt brjálað þegar fjölskyldan les þetta en þetta er það sem mér finnst og ég hef rétt á að segja það.“ 

Hún telur sig munu eiga í samskiptum við Gunnar aftur þegar fram líða stundir. „Ég er ekki sú manneskja að taka mér heimild til að dæma nokkurn mann og já, ég mun örugglega verða einhvern tíma í sambandi við hann. Þetta er bróðir minn og ég elska hann. Ég lít á þetta sem hræðilegt slys og þar við situr.“

Heiða hefur marga fjöruna sopið en segist aldrei hafa orðið fyrir öðru eins áfalli og dauða Gísla. „Þetta er það svakalegasta högg sem ég hef orðið fyrir. Ólýsanlegur sársauki. Stundum nær maður ekki andanum, þetta er svo óendanlega sorglegt. En ég mun samt ná mér aftur með tíð og tíma.“