Heiða kristín ekki í formennsku

Heiða Kristín Helgadóttir ætlar ekki að sækjast eftir formennsku í Bjartri framtíð. Hún vill hinsvegar sjá konu gegna embættinu og nefnir Brynhildu Pétursdóttur þingmann flokksins þar til sögunnar.

Guðmundur Steingrímsson lýsti því yfir á dögunum að hann muni stíga til hliðar vegna hríðfallandi fylgis flokksins í skoðanakönnunum. Kosið verður um nýja forystu 5. september.

Áður hafði Heiða Kristín gagnrýnt forystu flokksins og lýsti hún því jafnframt yfir í útvarpsviðtali að hún hefði áhuga á að leiða flokkinn. Af því verður hins vegar ekki, af því er fram kemur í orðsendingu hennar til flokksmanna, sem einnig birtist á Twitter síðu hennar, en þar segir: \"Ég hef ákveðið að bjóða mig ekki fram til formanns Bjartrar framtíðar. Breytingarnar sem BF er að ganga í gegnum snúast ekki um mig eða minn metnað heldur um það að flokkurinn geti endurvakið áhuga kjósenda og fundið neistann sem til  þarf til að til að hrífa aðra með. Metnaður minn liggur í því að leggja því verkefni liðog ég met stöðuna þannig að það verði best gert með því aðég taki sæti á Alþingi í haust í fæðingarorlofi Bjartrar Ólafsdóttur og veiti nýrri forystu stuðning til góðra verka. Þar vil ég sjá konu fremsta meðal jafningja. Sá dagur kann að koma ég mun bjóða mig fram til forystu, en sá tímapunktur er ekki núna,\" segir Heiða Kristín.