Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur og varaformaður Samfylkingarinnar, segist vísa ávirðingum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur til föðurhúsanna í einu og öllu í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í kvöld.
Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn, og formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu fyrr í dag og lýstu yfir áhyggjum af þekkingarleysi formanns velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanns Samfylkingarinnar, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík. Tilefnið var ummæli hennar í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-08-04-heida-bjorg-visar-gagnryni-minnihlutans-til-fodurhusanna/