Heiða Björg Hilmisdóttir, sem gegnt hefur varaformennsku í Samfylkinginni síðastliðið ár, hefur afráðið að bjóða sig áfram fram til starfans á landsfundi flokksins um næstu helgi.
Vegur hennar innan flokksins hefur farið vaxandi að undanförnu, en skemmst er að minnast sigurs hennar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórakosningar þar sem hún tryggði sér annað sætið á eftir oddvitanum Degi B. Eggertssyni með tilþrifum.
Heiða Björg sendi frá sér tilkynningu vegna framboðsins í morgun: \"Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa sem varaformaður Samfylkingarinnar, á landsfundi flokksins sem haldinn verður í lok þessarar viku. Ég hef verið varaformaður Samfylkingarinnar í liðlega eitt ár og á þeim tíma hefur sannarlega gengið á ýmsu, bæði í íslenskum stjórnmálum og hjá flokknum okkar. Þetta hefur verið krefjandi tími, en afar gefandi, enda sjaldan skemmtilegra í stjórnmálum, en þegar samstaða og eindrægni rikir, árangur starfsins verður sýnilegur og hreyfingin eflist. Ég er afar þakklát fyrir þennann tíma og það góða samstarf sem ég hef átt við Samfylkingarfólk um allt land og samverkafólk í forystu flokksins. Við eigum mikinn mannauð í Samfylkingunni.\"
Hún segir í tilkynningunni að framundan séu afar spennandi tímar og áframhaldandi uppbygging Samfylkingarinnar undir forystu Loga Einarssonar, sem lifandi hreyfingar jafnaðarfólks á Íslandi og mikilvægar sveitarstjórnarkosningar, þar sem jafnaðarfólk verður að sækja fram um allt land: \"Ég er full bjartsýni á framhaldið og ég veit að hreyfing jafnaðarfólks á mikil sóknarfæri. Ég vill leggja mitt af mörkum til að við nýtum þau færi og óska því eftir áframhaldandi umboði sem varaformaður Samfylkingarinnar á komandi landsfundi.\"