Heiða B. Heiðarsdóttir sem rekur vefverslunina Pomp og Prakt var 10 ára þegar hún rakst á auglýsingu í Morgunblaðinu sem benti áhugasömum á að hægt væri að ættleiða barn. Þetta barn var hún sjálf en auglýsingin birtist árið 1964.
Þetta kemur fram í spjalli hennar við Viktoríu Hermannsdóttur í þættinum „Segðu mér“ á rás 1.
Auglýsingin birtist svona:
Við óskum eftir að komast í kynni við ung hjón sem vilja taka kjörbarn. Svör sendist afgr. Mbl. fyrir föstudag merkt: Kjörbarn 9203.
Heiða segir þó sjálf að á endanum hafi hún eignast frábæra foreldra. „Ég segi oft að ég hefði ekki getað fengið betri foreldra þó ég hefði fengið að velja þau sjálf. Ég elst upp sem einkabarn og einhvern veginn fékk ég allt sem mig vantaði, hélt mig vantaði, allt sem ég heimtaði, ég fékk það í einhverri mynd og mér var svolítið kennt að ég væri bara nafli alheimsins,“ segir Heiða en Þau sem svöruðu auglýsingunni voru Guðfinna Jóhannesdóttir og Heiðar Georgsson.
Blóðmóðir hennar var íslensk en blóðfaðirinn var bandarískur. Hún átti ekki eftir að kynnast föður sínum fyrr en seint á lífsleiðinni en sjálf segir Heiða að það hafi verið henni erfitt að sjá auglýsinguna á sínum tíma.