Hefur verið sökuð um landsbyggðarhatur og hroka

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á RÚV segist ekki skilja þau ofsafengnu viðbrögð sem hún hefur fengið við frétt sem birtist í kvöldfréttum á sunnudaginn.

„Í fréttinni, sem var ekki einu sinni ein af helstu fréttunum í fréttatímanum, tók ég saman upplýsingar um flutning opinberra stofnana og sviða út á land frá aldamótum. Tilefnið var ákvörðun félagsmálaráðherra að flytja brunamálasvið HMS til Sauðárkróks."

Hún segir magnað hvað ein lítil frétt eins og þessi hafi orðið til mikils upphlaups og að henni þyki það sárt að færni hennar sem fréttamanns sé dregið í efa.

„Ég hef fengið fjölda tölvupósta, Facebook skilaboða og símhringinga frá fólki sem hefur sakað mig um landsbyggðarhatur og hroka, að hafa vísvitandi farið með rangfærslur til þess að gera fréttina að „enn meiri æsifrétt“, ég hef verið sökuð um að hafa ætlað mér að draga upp mynd af kjördæmapoti og spillingu. Í fréttinni gerði ég því miður þau mistök að ég setti tvo ráðherra í röng kjördæmi – sem reyndar engu breytti um innihald fréttarinnar. Mistökin voru leiðrétt um hæl og á þeim beðist afsökunar. Þau hafa hins vegar verið notuð til þess að kasta rýrð á mig sem fréttamann og draga heildindi mín í efa. Það þykir mér sárt og óverðskuldað."

Hún segir að viðbrögðin lýsi brengluðum hugmyndum um fjölmiðla.

„Það sem mér þykir hins vegar alvarlegast er að í þessu kristallast svo brenglað viðhorf til frétta og fjölmiðla. Að í fréttum séu fréttamenn að lýsa afstöðu sinni og/eða fjölmiðilsins og að þær séu unnar með það fyrir augum að klekkja á einhverjum, þær séu með einhvern annarlegan tilgang og að staðreyndum sé jafnvel hagrætt og þær falsaðar til þess að fréttin megi hafa sem mest áhrif, valda sem meslum usla eða tjóni."

„Og það sem er ef til vill alvarlegast af öllu er þegar lýðræðislega kjörnir fulltrúar lýsa þessu viðhorfi. Ekki einungis er það alvarlegt af þeim sökum að orð þeirra hafa mikið vægi í samfélagslegri umræðu heldur einnig vegna þess hve mikilli vanþekkingu það lýsir á hlutverki fjölmiðla, þeim siðareglum og vinnubrögðum sem þar gilda og þeim heilindum sem þar ríkja. Þetta er áhyggjuefni."

Vonar að fólk sýni meiri kurteisi næst þegar eitthvað álíka kemur upp á borðið.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég fæ yfir mig holskeflu svívirðinga og aðdróttana vegna fréttar sem ég hef skrifað. Og þetta verður ekki í síðasta sinn. Það er fylgifiskur starfsins. En mikið vildi ég óska að fólk gæti verið heiðarlegt og málefnalegt í gagnrýni sinni og það gæti sýnt stillingu og kurteisi."