Hefur þú séð þennan mann? lögreglan óskar eftir aðstoð lesenda

Hefur þú séð þennan mann? Lögreglan óskar eftir aðstoð þinni.

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir enn fremur:

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þótt myndin sé óskýr má ætla að bolurinn sem maðurinn klæðist geti gefið vísbendingar um hver hann er.

Vinsamlegast deilið.