"Þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tilkynnir aðildarríkjum Evrópusambandsins í gær með formlegum hætti að hann hafi einn og sér í krafti ráðherravalds síns ógilt ákvörðun Alþingis Íslendinga um aðildarumsóknina er það gerræði;" skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjum pistli sínum hér á forsíðunni á hringbraut.is. "Um leið er hann að auglýsa á vettvangi þjóðanna hvernig hann lítilsvirðir löggjafarsamkomu þjóðar sinnar, " bætir Þorsteinn við og segir málið allt vera andstætt stjórnarskrá lýðveldisins; utanríkisráðherra hafi svipt Alþingi valdi sínu. Hann vill fá úr því skorið hvort forseti Íslands hafi lagt á ráðin um þessa aðför að Alþingi
"Hugsum okkur eitt augnablik hver viðbrögð þjóðarinnar yrðu ef erlent ríki vanvirti Alþingi Íslendinga á þennan veg," skrifar Þorsteinn áfram og brýnir þjóð sína: "Það er ekki síður alvarlegt þegar íslenskur ráðherra ógildir ákvarðanir Alþingis upp á sitt eindæmi. Við því er aðeins eitt svar: Að þjóðin standi einhuga gegn valdbeitingu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra;" segir forsætisráðherrann fyrrverandi og telur að hvort sem menn séu hlynntir aðildarviðræðum eða andvígir þeim geti allir lýðræðissinar sameinast um að brjóta valdbeitingu utanríkisráðherra á bak aftur og færa málið inn á Alþingi. Þorsteinn veltir og fyrir sér stöðu ráðherrans, en þessi atburður er þess eðlis skrifar hann "að það ætti að vera umhugsunarefni fyrir þingmenn stjórnarandstöðunnar að flytja tillögu um vantraust á utanríkisráðherrann."