Gunnar Örn Sigurðsson hefur kennt yfir hundrað manns undanfarin ár að smíða sinn eigin rafmagnsgítar. Hann segir það ekki mikið mál og langflestir spjari sig vel. Það sé ekkert í líkingu við að spila á eigin gítar en sjálfur hefur hann smíðað nokkra tugi í gegnum ævina og fer til útlanda með á sýningar auk þess að sinna viðgerðum.
Gunnar segir mikið frelsi að smíða rafmagnsgítar miðað við hefðbundin „kassagítar“, þar sem þú getir verið miklu frjálslegri með hönnun á gítarnum. Linda Blöndal heimsótti á miðvikudag litríkan heim Gunnars Arnar í Brautarholtinu þar sem gítarar af ýmsum toga eru upp um alla veggi.