„hefur ráðherra eitthvað að fela ?“

Ekki fást opinber svör hjá félagsmálaráðherra við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins, um kaupaðila 3600 fullnustuíbúða af Íbúðalánasjóði á árunum 2008- 2017. Fyrirspurnin var lögð fram skriflega fyrir um ári síðan, en málið liggur nú hjá Persónuvernd, sem þarf að skera úr um lagalega óvissu og meta þarf hvort hafi veira vægi, persónuverndarsjónarmið eða fyrirspurnarvald þingmanna.

Félagsmálaráðherra taldi sig ekki mega birta nafnalista um kaupendur vegna persónuverndarsjónarmiða, þar sem svarið væri birt á opinberum vef Alþingis, sem stangaðist á við grunnreglu persónuverndarlaga.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu Miðflokksins og spurt hvort ráðherra hafi eitthvað að fela:

„Á árunum 2008-2017 voru 3600 fullnustuíbúðir seldar. Ráðherra neitar að upplýsa um þá sem keyptu. Hefur ráðherra eitthvað að fela ? Fyrir um ári sendi Þorsteinn Sæmundsson skriflega fyrirspurn til félagsmálaráðherra og óskaði eftir nafnalista þeirra sem keypt hafa  fullnustueignir af Íbúðarlánasjóði síðustu 10 ár.

Svar barst frá félagsmálaráðherra um þrem mánuðum seinna þar sem hann taldi sig ekki geta birt nafnalista vegna persónuverndarsjónarmiða. Þorsteinn hafði samband við persónuvernd á sínum tíma sem lagðist ekki á móti því að nafnalisti yrði birtur.“

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2019/01/28/hefur-radherra-eitthvad-ad-fela/