Hefur metnað fyrir starfi forseta

Davíð Oddsson forsetaframbjóðandi sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson á Hringbraut að komi til þess að hann muni gegna starfi forsetans, muni hann gera það af miklum metnaði. Hann segist ekki reikna með eða gera ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn leggi sér, sem slíkur, lið í kosningabaráttunni.

Davíð telur að ekki muni koma honum illa erlendis að hann hafi haft forgöngu um að setja Ísland á lista staðfestra þjóða fyrir innrásina í Írak.

Viðtalið við Davíð var fyrst á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:15 í gærkvöld og er endursýnt reglulega næsta sólarhringinn á Hringbraut. Hér má sjá viðtalið