Hefur litla trú á enn einum starfs­hópnum

Þor­steinn Víg­lunds­son, þing­maður Við­reisnar, kveðst litla trú hafa á enn einum starfs­hópnum sem skipaður hefur verið til að koma með lausnir í þeirri von að ná böndum á hús­næðis­vandann. Frétta­blaðið greindi frá því í dag að þau Anna Guð­­munda Ingvars­dóttir, að­­stoðar­­for­­stjóri Í­búða­lána­­sjóðs, og Gísli Gísla­­son, hafnar­­stjóri Faxa­­flóa­hafna, skipuðu hópinn sem for­sætis­ráð­herra kom á fót. 

Þor­steinn fagnar því að ríkis­stjórnin hafi, ári eftir að hún tók við völdum, áttað sig á hús­næðis­vandanum. „Það er hins vegar dá­lítið kómískt að sjá að meðulin sem gripið er til eru hefð­bundin meðul þessarar ríkis­stjórnar. Það er rokið til og skipaður starfs­hópur og sá starfs­hópur þarf að sjálf­sögðu að hafa sam­ráð við aðra starfs­hópa sem eru starfandi í hús­næðis­málum þá stundina og ætlað að skila til­lögum hið snarasta,“ sagði Þor­steinn í um­ræðum um störf þingsins fyrr í dag. 

Telur hann lík­legt að störf hópsins verð í takt við þeirra sem ríkis­stjórnin stundar. „Það nefni­lega virðist af­skap­lega lítið komast til fram­kvæmda hjá þessari blessuðu ríkis­stjórn. Henni tekst ekki að leggja mál sín fram sam­kvæmt á­ætlun, ekki nema að hálfu leyti í besta falli, og ég óttast að það verði ör­lög starfs­hópsins eða til­lagna hans að fáar þeirra komist nokkurn tímann til fram­kvæmda.“ 

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/hefur-litla-tru-a-starfshopi-leiktjaldarikisstjornarinnar