Hefur ekkert með mannréttindi að gera!

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og fyrrverandi innanríkisráðherra, segir að Ísland hafi aldrei átt að standa í stafni deilunnar við Rússa - því fari fjarri að afstaða Íslands sé einhver varðstaða fyrir mannréttindi.
 
Ögmundur skrifar harðorðan pistil á vefsvæði sitt í gærkvöld þar sem hann sagði meðal annars að ráðandi öfl í ESB og NATÓ neiti að virða lýðræðislegan sjálfstjórnarvilja íbúa Krím. Hvorki Nato né ESB séu englar í þessu máli heldur eigi drjúgan þátt í því hvernig komið er.
 

Þingmaðurinn segir að í febrúar hafi lýðræðislega kjörinn forseti Úkraínu, Viktor Janúkóvitsj, verið settur af með valdi: \"Hann þótti andsnúinn ESB og hallur undir Rússa,“ skrifar þingmaðurinn sem telur að fasísk öfl hafi verið gerendur í valdaráninu og séu enn. Hann fullyrðir að forystumenn kommúnista á úkraínska þinginu hafi verið beittir ofbeldi af hálfu fasista - meðal annars í ræðustól þingsins.

Ögmundur segir í samtali við fréttastofu RÚV að refsiaðgerðirnar gegn Rússum minni á kaldastríðsaðferðarfræðina sem hafi búið til stigmagnandi spíral sem aftur hafi hert harðlínuöfl beggja megin: \"Ég tel að hvorki NATÓ né ESB séu englar í þessu máli heldur eigi drjúgan þátt í því hvernig komið er.“

Hann er því þeirrar skoðunar að Ísland hafi aldrei átt að standa í stafni þessara aðgerða - því fari mjög fjarri að þetta sé varðstaða fyrir mannréttindi. Aftur á móti sé framhaldið erfitt eftir þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið: \"Nú verður að leggjast yfir málið og skilgreina hvernig komið er og hvernig við getum komist út úr þessum ógöngum.“ Ísland standi enga mannréttindastöðu með þessari afstöðu og þess vegna beri að breyta henni.