Hefur beðið í áratug eftir að komast í íbúðarkjarna fyrir fatlaða: „mér finnst vera farið illa með fatlaða í dag“

Katrín Selby, móðir fatlaðrar konu sem býr á sambýli, segist hafa misst allt traust á þjónustu við dóttur sína efir að hún hafi tvisvar gleymst úti í bæ. Dóttir Katrínar getur ekki tjáð sig og veit ekki hvar hún á heima og því segir Katrín að dóttir hennar hafi verið í hættu.

Katrín ræddi um mál dóttur sinnar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld en hún segir að í þeim tilfellum sem dóttir hennar týndist hafi hún verið skilið eftir í rúma klukkustund. „Í fyrra skiptið gleymdist að ná í hana og í síðara skiptið var hún keyrð í tómstund á vitlausum degi og skilin eftir í einn og hálfan tíma,“ segir Katrín.

Fatlað fólk eigi rétt á að velja hvar það býr

„Ég hef miklar áhyggjur af þessu og er búin að missa allt traust á þjónustunni,“ segir Katrín en dóttir hennar hefur verið á sambýli í Garðabæ frá árinu 2006. Þá hafi hún sótt um að dóttir hennar fái að í íbúðarkjarna fyrir fatlaða en hún er enn á biðlista.

Þá segir Katrín að lítið hafi verið um svör frá Garðabæ þrátt fyrir að hafa bent á að samkvæmt lögum eigi fatlað fólk rétt á að velja hvar það býr. „Mér finnst vera farið illa með fatlaða í dag og ég vona að stjórnmálamenn fari að taka þetta til sín að það verður að fara að hrista eitthvað upp í þessu kerfi,“ segir Katrín að lokum.

 

\"Engin