Hefur aldrei séð konu sína og börnin tvö

Bergvin Oddsson hefur verið blindur frá því um og upp úr fermingu. Hann stendur nú á þrítugu og hefur allar götur frá því hann missti sjónina tekist á við örlög sín af jákvæðni og bjartsýni - og ekki sakar kímnigáfan sem hann er kunnur af.

Bergvin var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Örlögin á Hringbraut í gærkvöld, en þar tekur sjónvarpsmaðurinn landskunni á móti venjulegu fólki sem lent hefur í óvenjulegum aðstæðum. Þættirnir hafa notið vinsælda á stöðinni frá því þeir hófu fyrst göngu sína á vormánuðum.

Í þættinum, sem verður endursýndur á Hringbraut í dag og um helgina, lýsir Bergvin aðstæðum sínum af fádæma hispursleysi, meðal annars frá fyrstu kynnum sínum af konunni sinni sem er kostuleg frásögn, svo og því hvernig honum hefur gengið að annast ung börn sín sem hann hefur náttúrlega aldrei séð en upplifir svip þeirra og andlitsfall með snertingunni einni saman.

Örlögin eru frumsýnd öll máanudagskvöld klukkan 20:30 í kvöld, en endursýnd í dag og um helgina svo sem fyrr segir.