Hefur áhyggjur af andúð í garð fólks

\"Ég hef áhyggjur af rasismanum sem er að festa sig í sessi í íslensku samfélagi. Ég hef áhyggjur af vaxandi fordómum, útlendingahatri, íslamófóbíu, þjóðernishyggju, þröngsýni og andúð í garð náungans. Ég hef miklar áhyggjur af uppgangi öfgaafla í íslensku samfélagi.\"

Þetta skrifar Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórar Samfylkingar á fésbókarsíðu sína í dag og geldur þar varhug við vaxandi hatursumræðu í samfélaginu sem hefur ekki síst hitt hana sjálfa fyrir á síðustu misserum, en hún er ættuð frá botni Miðjarðarhafs og þekkir vel til hlutskiptis fólks af erlendum uppruna hér á landi. Á færslu hennar getur að líta nokkur dæmi um hatursumræðu í hennar garð.

Hún minnir á að í dag sé alþjóðlegur dagur gleðinnar: \"Ég verð nú samt að viðurkenna að ég er ekkert rosalega glöð og er ekki búin að vera það síðustu daga. Það er vegna þess að ég hef áhyggjur. Ég hef áhyggjur af landi mínu og þjóð. Ég hef áhyggjur af íslensku samfélagi og þeirri þróun sem á sér stað.\"

Hún kveðst í tilskrifi sínu hafa áhyggjur af þeim sem hafa andúð á öðru fólki einfaldlega vegna þess að það er öðruvísi á litinn, talar annað tungumál, er fætt í öðru landi eða trúir á annan guð en það sjálft: \"Ég hef áhyggjur af þeim sem leggja sig sérstaklega fram við að dreifa slíkri andúð á fólki til samborgara sinna,\" skrifar Sema Erla.

Hún kveðst hafa áhyggjur af því að samfélagið sé að tapa þeim undirstöðum sem gera það heilbrigt og gott: \"Ég hef áhyggjur af því að við séum að tapa umhyggjunni, kærleikanum, góðmennskunni, umburðarlyndinu, virðingunni fyrir hvort öðru og réttlætiskenndinni. Ég hef áhyggjur af því að við séum að tapa því sem gerir okkur að manneskjum,\" skrifar hún enn.

Hún botnar skrif sín þessum orðum: \"Gleymum því ekki að við erum öll manneskjur, sama hvaðan við komum, hvernig við erum á litinn eða hver saga okkar er. Við eigum öll jafnan rétt á því að lifa vel sæmandi lífi, að vera þátttakendur í samfélaginu og geta gengið óáreitt um göturnar. Við eigum öll rétt á virðingu, kærleika og umburðarlyndi frá samborgurum okkar - sama hvers vegna. Við komumst nefnilega ansi langt á því. Munum að vera góð við hvort annað. Ást & friður!\"