Hefndarþorsti í umfjöllun um atla

Katrín Oddsdóttir mannréttindalögfræðingur telur að fréttaumfjöllun Rúv um uppreista æru Atla Helgasonar sem myrti mann árið 2000 en hefur nú sótt um lögmannaréttindi á ný beri keim af hefndarþorsta.

Kastljós sagði fyrst frá málinu í fyrrakvöld en í gær var sorg föður hins myrta áberandi í fréttum; honum er brugðið við tíðindinog telur sig ekki hafa mætt iðrun af hálfu Atl.

\"Mér finnst helst til of mikill hefndarþorsti grundvalla þennan mikla fréttaflutning Rúv af máli Atla Helgasonar,“ segir Katrín Oddsdóttir í nýrri færslu á eigin fésbók.

Hún heldur áfram: \"Fyrsta frétt og Kastljósumfjöllun um það að maður, sem hefur setið af sér sinn dóm, geri tilraun til að fá lögmannsréttindi. Er það til annars en að kalla eftir viðbrögðum sem byggjast á hatri og gremju?“

Katrín skrifar að lokum: \"Þrátt fyrir að þarna hafi verið framinn óhugnalegur glæpur verður einhvern tímann að linna og leyfa fólki sem lifir að halda áfram, næg hlýtur byrðin að vera af því að hafa framið slíkan glæp.\"

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi formaður Lögmannafélags Íslands tók undir þessi sjónarmið Katrínar í gær; lög landsmanna væru í þessum anda og almenningur yrði að taka þeim eins og þau væru og vega gildi þeirra almennt en ekki út frá einstökum persónum.