Hefja söfnun fyrir fjöl­skyldu skip­verjans sem féll frá borði

Hópur frændfólks Ingu Bjargar Símonardóttur, eiginkonu Ekasit Thasaphong, hafa ákveðið að hefja söfnun fyrir fjölskylduna eftir að Ekasit féll frá borði við störf á fiskveiðibát fyrr í þessum mánuði.

Færslu Karenar Lindar Óladóttur um söfnunina má sjá hér fyrir neðan en hún er frænka Ingu.

„Þann 3. desember síðastliðinn varð slys um borð í línubátnum Sighvati sem varð til þess að elsku Bhong, maður Ingu Bjargar frænku okkar, féll fyrir borð. Þrátt fyrir mikla leit fannst hann ekki og eftir standa Inga Björg og börnin þeirra þrjú með brotin hjörtu.

Eins og gefur að skilja er áfallið mikið fyrir fjölskylduna og maður fyllist vanmætti í svona aðstæðum. Okkur frændsystkinum Ingu Bjargar langar til að leggja okkar af mörkum við að aðstoða þau á þessum erfiðu tímum og við vitum að margir vilja vera með í því.

Við höfum því ákveðið að hefja söfnun með það í huga að létta undir með þeim fjárhagslega á erfiðum tímum sem framundan eru. Söfnunarreikningurinn er á mínu nafni og munum við færa Ingu Björgu allt það sem mun safnast fyrir jól.“

Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:

Kennitala: 290489-2619

Reikningsnúmer: 0143-05-062087