Hefja formlegar viðræður

Formenn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar ætla að hefja formlegar stjórmyndarviðræður.

Í tilkynningu frá Bjarna segir: „Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur undanfarna daga  átt samræður við formenn annarra stjórnmálaflokka um mögulegt ríkisstjórnarsamstarf, á grundvelli þess umboðs sem forseti Íslands fól honum 2. nóvember sl.

Nú síðdegis gekk Bjarni á fund forseta og tilkynnti honum að á grundvelli samtala við formenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, hafi aðilarnir í dag ákveðið að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður.“