Hefja birtingu minningargreina

Vefur Fréttablaðsins, fréttabladid.is hefur hafið birtingu minningargreina eins og allir vita hafa minningargreinar alfarið verið á síðum Morgunblaðsins og seinna á mbl.is. Vefur Fréttablaðsins hóf fyrir skömmu að bjóða upp á slíkar birtingar endurgjaldslaust og seilist þannig á rammgróið svið Morgunblaðsins – og jafnvel eina helstu lífæð Moggans.

Á hverjum útgáfudegi er stór hluti Morgunblaðsins lagður undir fjölmargar minningargreinar um látna einstaklinga – og allir skrifa sem vilja.

Þegar Davíð Oddsson var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins 2009 vildu sumir segja blaðinu upp í mótmælaskyni en hættu samt við svo þeir misstu ekki af minningargreinunum.

Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur skrifaði þá í Fréttablaðið:

„Það er mat margra sem komnir eru fram á og yfir miðjan aldur að sá hluti Morgunblaðsins sem hvað erfiðast sé að láta framhjá sér fara sé minningargreinarnar. Takist ekki að fylgjast með andlátstilkynningum eða skanna minningargreinar reglulega sé ávallt sú hætta fyrir hendi að andlát gamalla vina, kunningja eða fólks sem tengist vinum og vandamönnum fari einfaldlega framhjá manni.Pínlegar aðstæður geta skapast þegar spurt er t.d. „hvernig hefur mamma þín það?“ og viðkomandi svarar: „hún er látin.“ Til að fyrirbyggja þetta vilja margir, og þá sérstaklega þeir sem komnir eru á þann aldur að þeir eru farnir að sjá á eftir jafnöldrum yfir móðuna miklu, fletta minningargreinahluta Morgunblaðsins helst daglega“. 

Samkvæmt upplýsingum á frettabladid.is fara prófarkalesarar einnig yfir þær minningargreinar sem berast.