Færeyingar í fiski einkenna veiðiþáttinn Við árbakkann í kvöld en þar skellir Gunnar Bender sér upp á Mýrar og tekur Jógvan Hansen og Fróða Ísaksen tali á bökkum einnar mestu perlu Vesturlands, Langá.
Veiðiþættirnir Við árbakkann hafa verið á dagskrá Hringbrautar í allt sumar og notið vinsælda veiðimanna, enda eru vanir menn sem halda um míkrafón og myndavél; Gunnar Bender hefur áratugareynslu af gerð veiðiþátta og Steingrímur Jón Þórðarson myndatökumaður á að baki jafn langa reynslu á bak við linsuna.
Og það er létt yfir þessum þætti; Jógvan Hansen fer á kostum í samtalinu með vini sínum Fróða sem er sjómaður - og vantar kannski smávegis þolinmæði í fluguveiðina, enda vanari því að sveifla aflanum um borð í trolli. Þriðji maðurinn í hollinu er Sigurjón Gunnlaugsson, einn sé veiðnasti hér á landi - og segir Jógvan að veiði hans felist aðallega í því að fá að taka í stöngina hjá Sigurjóni þegar fiskurinn sé að nálgast land.
Í þætti kvöldsins er einnig kíkt við í Hrútafjarðará þar sem Þröstur Elliðason er tekinn tali ásamt Baldvini í Málningu.
Við árbakkann er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00.