Þegar við Kristján áttum viðskiptin vorum við bara fjórir. Ég með minn lögfræðing, hann með sinn og ég lét engan annan vita. Þetta var bara rissað upp á einu A4-blaði,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, í viðtali við Markaðinn en hann var valinn viðskiptamaður ársins 2018 af dómnefnd blaðsins.
Guðmundur, sem er oftast kenndur við útgerðarfélagið sem áður hét Brim, keypti 34,1 prósents eignarhlut Vogunar, sem Kristján Loftsson fer fyrir, í HB Granda um miðjan apríl og nam kaupverðið 21,7 milljörðum króna.
Guðmundur var síðan ráðinn forstjóri HB Granda í sumar. Hann rekur ástæðuna fyrir kaupunum aftur til ársins 2012 þegar veiðigjöldin voru hækkuð „upp úr öllu valdi“. Þá hafi verið töluverð framlegð í sjávarútvegi en reikniformúlan á bak við veiðigjöldin hafi ekki tekið tillit til verðmætasköpunar af fisktegundum sem frystitogarar veiða og vinna úti á sjó.
„Veiðigjöldin mismuna útgerðarmunstrum. Ef þú ert með útgerð sem skapar aukin verðmæti úti á sjó þar sem fiskurinn er flakaður og honum pakkað í neytendapakkningar, þá lenda fisktegundirnar í hærra gjaldi en ef þeim er landað til vinnslu. Af þeim 20 milljörðum sem er búið að taka út úr sjávarútveginum í veiðigjöldum á tveimur árum koma 17 milljarðar frá bolfisktegundum og þrír milljarðar frá uppsjávartegundum af því að arðurinn af uppsjávartegundum er allur myndaður í landi,“ segir Guðmundur.