Hefði viljað meira afgerandi niðurstöðu

Verkfallsaðgerðir félagsmanna VR voru samþykktar í gær með naumum meirihluta, eða 52,3 prósent þeirra sem greiddu atkvæði. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefði viljað sjá meira afgerandi niðurstöðu. Vísir.is greinir frá.

„Ég hefði viljað sjá meira afgerandi afstöðu í þessari kosningu en lýðræðið er þannig að við förum eftir vilja félagsmanna. Nú förum við í þessar framkvæmdir og vonumst til að viðsemjendur okkar séu tilbúnir til þess að semja við okkur,“ segir Ragnar Þór í samtali við Vísi.

Fyrstu verkfallsaðgerðir félagsmanna munu hefjast 22. mars. Eftir það munu verkfallsaðgerðir dreifast til 1. maí, þegar áætlað er að ótímabundið verkfall hefjist. Fyrstu verkfallsaðgerðir munu beinast að ferðaþjónustu- og rútufyrirtækjum.

„Þetta var tæpt og við vissum að það voru skiptar skoðanir innan okkar félags um það hvort ætti að fara í aðgerðir. Félagsmenn okkar eru afar ólíkir samanborið við Eflingu til að mynda. Við vorum búnir að ræða við okkar félagsmenn og fundum að það var líka á brattann að sækja. Einnig var orðræðan óvægin í okkar garð, bæði hjá leiðarahöfundum stóru blaðanna og öflugum hagsmunahópum og öflum í samfélaginu,“ bætir Ragnar Þór við.

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir í samtali við Vísi að vinnustöðvunin eigi að beinast að breiðu bökunum. „Hins vegar er alveg ljóst að rútufyrirtæki hér á landi hafa verið að tapa fjármunum á síðustu árum. Ástæður þess eru einfaldar, sterkt gengi krónunnar hefur gert okkur lífið leitt, laun voru hækkuð með kjarasamningum árið 2015 og svo var greininni gert að greiða virðisaukaskatt ári seinna. Allt þetta hefur gert það að verkum að rútufyrirtæki geta einfaldlega ekki greitt hærri laun en nú er gert.“

Hann segir verkfallsaðgerðirnar munu koma sér illa fyrir greinina í heild sinni. „Þetta mun hafa alvarlegar afleiðingar og skaða hana. Og það er í sjálfu sér mjög áhugavert að fara í svo stórar aðgerðir með svo naumum meirihluta.“