„hef ráðið mér lögmann“

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og höfundur og ábyrgðarmaður skýrslunnar, um seinni einkavæðingu bankanna, hefur upplýst að hún hafi ráðið sér lögmann vegna hugsanlegra málssókna vegna skýrslunnar.

Vigdís skrifar á Facebook: „Á fjölmennum fundi sjálfstæðismanna í Kópavogi í morgun - þar sem skýrslan var til umræðu - upplýsti ég að ég hef ráðið mér lögmann til að gæta hagsmuna minna gagnvart þeim aðilum sem hafa gefið í skyn að ég og aðrir nefndarmenn fjárlaganefndar kunnum að eiga yfir höfði okkar málssókn af hálfu embættismanna og ráðgjafa, sem unnu með ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur að einkavæðingu bankanna 2009. 
Er það algjört einsdæmi hér á landi - á Norðurlöndum og víðar að kjörinn fulltrúi þjóðarinnar þurfi að ganga þessa leið.“