„Ég hef ekki falið það fyrir neinum að ég er í MBA-námi við HR og tel það alls ekki skaða þingmennskuna. Ég á minn eigin frítíma og nýti hann í að mennta mig. Ég fann að ég þurfti nýja þekkingu er búin að vera 12 ár á þingi og ákvað að leita mér nýrrar þekkingar með þessum hætti og sé ekki eftir því,“ segir Katrín Júlíusdóttir þingmaður og varaformaður Samfylkingarinnar.
Katrín er í hópi þingmanna sem stundar háskólanám samhliða þingmennsku en Þór Saari, fyrrverandi þingmaður sem sat fjögur ár á síðasta kjörtímabili, fordæmir að þingmenn sitji á skólabekk. Hann segir starfið vera 110%, svo tímafrekt og krefjandi að öll orka þingmanna eigi að beinast að þingmennskunni.
Katrín svarar þeirri gagnrýni með þeim hætti að námið við HR sé skipulagt þannig að hún vinni á kvöldin, vakni eldsnemma á morgnana til að læra og nýti helgar þegar þær gefast fyrir skólann.
“Þú sérð mig ekki á neinum botnlistum í þátttöku í þingstörfum þrátt fyrir skólagönguna, ég hef náð að sameina starf og nám vel. Það er aðallega fjölskyldan mín sem kvartar,“ segir Katrín í símaviðtali við Hringbraut.
„Ef ég væri á kafi í hestamennsku væri ég kannski að eyða álíka tíma í hana og skólann.“
Rætt hefur verið að þingmenn hafi tekið með sér námsverkefni inn í sali Alþingis og hafi truflað nefndarstörf. Katrín segist ekki kannast við að hafa orðið vitni að því. Ef árekstur hefur skapast milli vinnu og skóla hafi þingmennskan forgang.
Þá getur hún þess að í MBA-námi séu langflestir nemar í 100% störfum annars staðar. Skipulagið geri ráð fyrir að hægt sé að vera í krefjandi störfum samhliða náminu.
Katrín klárar MBA-gráðuna í vor. Hún segir alls óvíst hvort hún láti þar við sitja, enda hafi hún notað námið mikið í starfinu, hún telji það hafa bætt sig. Hún hafi aðeins verið 28 ára gömul þegar hún tók sæti á þingi og hafi hætt námi áður en hún kláraði háskólagráðu, þá einstæð móðir sem hafi ekki náð að lifa á lánum frá LÍN.