Haustrigningar fram á helgina

Það er heldur haustlegt í veðurkortunum, enda vel liðið á september - og má búast við rigningu og skúrum um mikinn hluta landsins allt fram á helgi þegar veður fer kólnandi.

Landsynningurinn er ráðandi með rigningu um sunnan- og vestanvert landið næstu daga, en vindurinn sem fylgir þessu veðri verður á köflum nikkuð hvass, eða allt upp undir 15 metra á sekúndu. Hiti verður á bilinu 7 til 13 stig yfir daginn.

Á miðvikudag verður austlæg átt og má þá búast við þurrviðri um vestanvert landið, en svo byrjar að rigna norðvestantil á fimmtudag og þá kólnar heldur og má þá búast við 3ja stiga hita um norðanvert landið, en 10 stigum syðra.