Spurningin í fyrirsögninni hér að ofan hefur væntanlega verið á vörum margra ökumanna á höfuðborgarsvæðinu í morgun, því næturfrostið hafði skilið eftir væna hélu á bílrúðum í morgun þegar menn héldu til vinnu.
Ef til vill hafa einhverjir verið búnir að gleyma árstímanum eftir góðan septembermánuð sem hefur verið sólríkur og hlýr um stóran hluta landsins þótt heldur hafi kólnað á allra síðustu dögum.
Ekkert hausthret er þó í kortunum og sunnanáttir ríkjandi næstu daga með þokkalegum lofthita, á að giska frá 5 til 10 gráðum.
Helgin verður þó nokkuð vindasöm, einkum laugardagurinn þegar hann blæs hressilega úr suðaustri, allt yfir 20 metra á sekúndu, en þá verður talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu, en lengst af verður bjart og þurrt yfir helgina á norðanverðu landinu.