Framtíðin eftir kvótamissi

Í þætti Bryggjunnar í  kvöld skoðum við hausaverkun hjá Haustak í Grindavík. Sölvi kynnti sér afurðina sem einn ættbálkur í Nígeríu kaupir einvörðungu en skipar milljónum manna.

Tækifærin eftir kvótamissi er eitt af því sem við ræðum í heimsókn til Hafnarfjarðar. Ræðum við Lúðvík Geirsson hafnarstjóra og fyrrverandi bæjarstjóra og þingmann um starfsemina á höfninni og hvaða kröfur framtíðin gerir með hafnirnar þar og í nærliggjandi sveitarfélögum.

Bryggjan er nýr þáttur í umsjón Lindu Blöndal, Sölva Tryggvasonar og Friðþjófs Helgasonar myndatökumanns. Vikulega á mánudögum kl.21.30.