Haukur tætir í sig miðaldra fólk: hver tekur mynd af hundakúk og birtir á facebook með gps-hnitum saursins?

Ekki er langt síðan að Haukur Örn Birgisson hæstaréttarlögmaður hélt uppá fertugsafmælið sitt. Í fyrstu var það ekkert stórmál, hann leit enn á sig sem strák en síðan tók hann eftir aðeins undarlegri hegðun hjá sér. Í pistli á Vísi lýsir hann hvernig hann fór að segja undarlega og skrítna hluti sem áður þóttu glataðir en pistilinn má lesa hér.

Ef listað er upp það sem kemur fram í pistli Hauks Þórs er eftirfarandi merki um að þú sért orðinn miðaldra!

1. Þú uppgötvar að þú ert byrjaður að segja pabbabrandara.

2. Börnin þín hrista hausinn og skammast sín en þér finnst brandararnir frábærir

3. Þú skráir þig á hverfasíðu á Facebook

4. Þú kvartar undan aksturslagi fólks á tilteknum gatnamótum

5. Þú kvartar yfir unglingum sem aka hjálmlausir á vespum.

6. Þú froðufellir af reiði þegar einhver skýtur upp flugeldi eftir klukkan tíu á kvöldin

7. Veðurfar fer að skipa stóran sess í samtölum þínum.

8. Þér finnst gaman að ræða um ættfræði.

9. Þú birtir ljósmyndir af hundaskít á gangstéttum til að reyna hafa uppá eigandanum og draga hann til ábyrgðar!

Haukur segir: „Vel á minnst, hver tekur eiginlega ljósmynd af kúk og birtir á samfélagsmiðli með GPS-hnitum saursins? Nema hvað ...“

Þá segir Haukur að vinir fari að finna hamingju í maraþoni og keppnum í járnkalli.

„Ef þeir eru ekki orðnir Landvættir þá eru þeir alveg að verða það. Tilvistarkreppan er slík að nauðsynlegt verður að sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að líkami og sál séu ekki komin fram yfir síðasta söludag.“

Þá bætir Haukur Örn við:  „Það er einhver firra sem leggst yfir fertuga [...] Vonandi eldist þetta af manni.“

Pistil Hauks má finna hér á Vísi.