Móðir hauks telur hann látinn

Eva Hauksdóttir, bloggari og móðir Hauks Hilmarssonar telur sig hafa nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir því að Haukur sé talinn af en treystir ekki tyrkneskum stjórnvöldum um að þeir séu með líkamsleifar hans. Á vefsíðu Evu má lesa skilaboð hennar og fjölskyldu Hauks.  Skilaboðin eru hér og eftirfarandi:

„Fjölskylda og vinir Hauks hafa unnið ötullega að því að afla upplýsinga um afdrif hans. Fjölmargir hafa aðstoðað við upplýsingaöflun og þýðingar og ennþá fleiri hafa boðið fram aðstoð sína. Við erum innilega þakklát.

Við teljum okkur vera búin að púsla sögunni af ferðum Hauks saman í grófum dráttum. Við höfum áreiðanlegar heimildir fyrir því að YGP telji hann af og vitum nokkuð nákvæmlega hvar hann féll en við vitum ekki ennþá hvar líkið er. Kúrdar komast ekki inn á árásarsvæðið til þess að leita en það hefur verið leitað á öllum sjúkrahúsum í borginni og hann hefur ekki fundist. Í tyrkneskum fjölmiðlum hefur komið fram að Tyrkir séu með líkið og að það verði sent heim, en það hefur enginn haft samband við íslensk yfirvöld vegna þess og þetta gæti verið byggt á sögusögnum eða hreinlega áróðursbragð. Það er allt eins líklegt að hann hafi grafist undir rústum. Við áttum fund með Utanríkisráðuneytinu og Lögreglunni í dag. Þau hafa engar viðbótarupplýsingar en eru í sambandi við sendiráð og stjórnsýslustofnanir víða um heim.

Ef svo ólíklega vill til að einhver hafi upplýsingar sem virðast áreiðanlegar um það hvar líkamsleifar Hauks eru niðurkomnar, endilega hafið þá samband við [email protected] eða beint við lögreglu eða Utanríkisráðuneytið. Á þessu stigi hjálpar það ekki að senda okkur fréttatengla eða upplýsingar um einhvern sem er á svæðinu eða þekkir til þar.\"