Haukur Heiðar vekur athygli á undarlegu orðalagi þáttastjórnenda hjá Omega í viðtali við Vilhjálm Frey Björnsson sem var á dögunum dæmdur fyrir að frelsissvipta, nauðga og ganga í skrokk á vændiskonu á Twitter síðu sinni í dag.
Haukur bendir á að þarna sé „stórhættulegum manni sem drakk spritt, nauðgaði og gekk í skrokk á konu klukkutímum saman“ lýst sem góðum manni sem fór út af brautinni.
Vilhjálmi er titlaður sem góður gestur, sem hafi farið svolítið út af brautinni en komið inn á hana aftur. Þetta hafi verið erfitt hjá honum en að það sé oft hægt að brosa yfir velgengi hans áður en hann dettur út af brautinni aftur.
Sagt um stórhættulegan mann sem drakk spritt, nauðgaði og gekk í skrokk konu klukkutímum saman pic.twitter.com/qqcAzprHWa
— Haukur Heiðar (@haukurh) January 7, 2023
Ólöf Tara, ein af forsprökkum Öfga, tekur í sama streng. „Hann og Vefju Reynir eru mjög gott dæmi um meðvirkni edrúsamfélagsins. Þeir eru bara aðeins að fara útaf brautinni🙃,“ segir Ólöf og heldur áfram:
„Tala nú ekki um þetta eitraða Guðstal endalaust.“
Hann og Vefju Reynir eru mjög gott dæmi um meðvirkni edrúsamfélagsins.
— Ólöf Tara🔞 (@OlofTara) January 7, 2023
Þeir eru bara aðeins að fara útaf brautinni🙃