Hauk­ur ger­ir grín að á­hrif­a­völd­um: Á­hrif­a­laust fólk sem hef­ur und­ar­leg á­hrif

Lög­maðurinn Haukur Örn Birgis­son gerir góð­lát­legt grín að á­hrifa­völdum í Bak­þönkum Frétta­blaðsins í dag. Eins og hann bendir rétti­lega á eru Ís­lendingar mjög sólgnir í fréttir af fræga og fal­lega fólkinu sem svo oft er skrifað um í fjöl­miðlum.

„Þúsundum saman smellum við á fyrir­sagnir sem teyma okkur á­fram á marineraðar ljós­myndir af frægu fólki, sem fæst er frægt fyrir nokkuð annað en að vera frægt. Enginn veit af hverju og fáir geta bent á at­vik í sínu lífi þar sem þetta fólk hafi á­hrif á sig. Við stöndumst hins vegar ekki freistinguna af því að fylgjast með á­hrifa­lausu fólki hafa ein­hver undar­leg á­hrif,“ skrifar Haukur.

Hann segist þó hafa tekið eftir því að á­hrifa­valdarnir séu margir hverjir farnir að eyða tíma sínum saman um helgar og svo virðist sem þau hafi hrein­lega stofnað eitt­hvert fé­lag.

„Hver í sínu lagi birta stjörnurnar myndir frá sama staðnum, sama partíinu, sama út­sýninu, jafn­vel sama fólkinu. Með myndunum birtast þó engin skila­boð – bara ljós­mynd af þeim, horfandi al­vöru­gefin og heim­speki­leg hvert í sína áttina, eitt­hvert út í tómið. Það virðist alveg bannað að horfa beint í mynda­vélina.“

Haukur segist þó vera búinn að sætta sig við það að aldrei muni birtast mynd af honum og því hvað hann gerði um helgina í fjöl­miðlum.

„Það hefur enginn á­huga á þannig mynd, enda er ég með öllu á­hrifa­laus. Ekki einu sinni börnin mín hlusta á það sem ég hef að segja. Eini sénsinn minn til þess að fá 100 læk á Face­book er að birta krútt­lega mynd af krökkunum eða tagga hálfan vina­hópinn. En öll verðum við að byrja ein­hvers staðar. Ég minni á að Jesús var bara með 12 fylgj­endur í upp­hafi,“ skrifar hann.

Eru les­endur sam­mála Hauki um að á­hrifa­valdar séu á­hrifa­laust fólk? Eða er hann kannski bara smá af­brýði­samur sjálfur?