Haukur fór tómhentur heim af fæðingardeildinni: „hefði viljað fá að kveðja þá á mínu eigin dánarbeð, í stað þeirra“

„Í síðustu viku eignaðist ég tvíburadrengi og í síðustu viku missti ég tvíburadrengi. Þegar ég hélt að við værum komin fyrir vind þá hætti lífið í maganum. Fyrirvaralaust var fótunum kippt undan. Það var sárt að horfa á þá, liggjandi í vöggu sinni, og hugsa til alls þess sem við þremenningarnir fórum á mis við.“

Þannig hefst áhrifmikill og einlægur pistill eftir Hauk Örn Birgisson í Fréttablaðinu. Þar segir Haukur enn fremur:

„Ég hefði viljað fá að fara með þá heim af fæðingardeildinni í stað þess að skilja þá þar eftir.

Ég hefði viljað fá að sjá þá taka sín fyrstu skref, segja sín fyrstu orð.

Ég hefði viljað fá að kenna þeim að hjóla, hvetja þá áfram þegar þeir detta.

Ég hefði viljað fá að ruglast á þeim.

Ég hefði viljað fá að fara með þeim í golf.

Ég hefði viljað fá að sjá þá fara á fyrstu stefnumótin.

Ég hefði viljað fá að vera svaramaður þeirra á brúðkaupsdaginn.

Ég hefði viljað fá að hitta börnin þeirra.

Ég hefði viljað fá að fara í taugarnar á þeim á mínum gamals aldri.

Mest af öllu hefði ég viljað fá að kveðja þá á mínum eigin dánarbeð, í stað þeirra.“