Haukur ekki í haldi tyrkja

Varn­ar­málaráðherra Tyrk­lands hef­ur staðfest að Hauk­ur Hilm­ars­son sé ekki í haldi tyrk­neskra stjórn­valda að því er fram kemur í orðum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra sem ræddi við Nurett­in Canikli, varn­ar­málaráðherra Tyrk­lands, um mál Hauks í gærdag.

Að því er kem­ur fram í upp­lýs­ing­um frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu gat Canikli ekki veitt upp­lýs­ing­ar um af­drif Hauks að öðru leyti. Hann sagði að tyrk­nesk hernaðar­yf­ir­völd myndu liðsinna ís­lensk­um stjórn­völd­um við leit­ina að hon­um. Ástvin­um Hauks hef­ur verið greint frá efn­is­atriðum sam­tals ráðherr­anna.

Katrín jakobsdóttir, forsætisráðherra tók máls Hauks upp á fundi sínum með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í gær og óskaði eftir aðstoð Þjóðverja við hafa uppi á Hauki og koma honum heim til Íslands.