Akureyri: hatursbréf til bæjarstjóra

Það er ólýsanleg reynsla að upplifa þann mikla harmleik sem kostað hefur ótal líf sýrlenskra flóttamanna. Reynslan er ekki bara sár og erfið heldur einnig gefandi.

Þetta segir Þórunn Ólafsdóttir sjálfboðaliði sem er nýkomin til Íslands frá grísku eyjunni Lesbos. Þórunn brýnir Íslendinga til að taka á móti fleiri flóttamönnum en að er stefnt. Hún hefur aldrei séð eftir að hafa lagt sitt af mörkum til björgunar flóttamanna við Lesbos þótt drukknun barna, kaosið og afskiptaleysi umheimsins sé henni oftarlega í sinni.

Þetta kom ásamt öðru fram í fréttaskýringaþættinum Kvikunni sem sýnd var á Hringbraaut í gærkvöld. Fram kom í þættinum að undirbúningur fyrir komu fyrstu flóttamannanna á Akureyri gengur vel og eru íbúar almennt jákvæðir. Þó er enn ósamið milli ríkis og sveitarfélaga sem bjóða flóttamenn velkomna og er óljóst hvort af móttöku verður á þessu ári, tíminn vinnur gegn hagsmunum flóttafólksins.

Einnig kom fram að bæjarstjórinn, Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, hafi móttekið mjög neikvæða tölvupósta sem vart er hægt að kalla annað en haturspósta þar sem varað er við að í hópi flóttamanna séu hryðjuverkamenn. Í einum tölvupóstanna segir: „Enn og aftur velja Íslendingar að hleypa glæpalýð í landið sem og öðrum sem koma ekki til með að bæta stöðuna í þessu landi.“

Þáttinn má nálgast hér á hringbraut.is, en hann er og endursýndur í dag á Hringbraut.