Embættismaður hótar þingmönnum

„Þingmenn innan stjórnarmeirihluta fjárlaganefndar hafa fengið beinar hótanir um æru- og eignamissi frá háttsettum embættismanni eftir að skýrslan hafði verið kynnt. Kvörtun vegna þess verður sett í viðeigandi farveg.“

Þetta er bein tilvitnun í orð meirihluta fjárlaganefndar Alþingis. Undir þetta skrifa þingmennirnir; Guðlaugur Þór Þórðarson, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Benediktsson, Páll Jóhann Pálsson og Valgerður Gunnarsdóttir.

Sú breyting er á skýrslunni margfrægu að nú er Vigdís Hauksdóttir ein sögð vera höfundur hennar, en ekki meirihluti nefndarinnar og ekki Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þó kynnti skýrsluna með Vigdísi.

Meirihlutinn samþykkti að senda skýrsluna til stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í von um rannsókn þeirrar nefndar og að leynd yfir gögnum verði aflétt.