Hátt í 1200 skráð sig í #teamiceland

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid blása í til alþjóðlegrar liðssöfnunar fyrir þátttöku Íslands á HM í Rússlandi, nú þegar 100 dagar eru í keppnina.

Í nýju Inspired by Iceland myndbandi frá Íslandsstofu undir merkinu #TeamIceland bjóða Bessastaðahjónin umheiminum að ganga til liðs við íslenska liðið, hvetja það áfram og deila gleðinni með Íslendingum.

„Við erum ótrúlega stolt af liðinu okkar og afrekum þess,“ segir Guðni í myndbandinu. „Hvort sem við sigrum eða töpum þá er alltaf spennandi að vera hluti af einhverju stærra þó þú sért smár,“ segir hann.

„Sama hvern þú styður og hvaðan sem þú ert, þá er alltaf pláss fyrir þig í okkar liði,“ segir Eliza, um leið og þau hjónin sparka léttilega á milli sín bolta í Bessastaðastofu.

Nú fyrir hádegi á fimmtudegi höfðu rúmlega 1000 manns skráð sig í stuðningsliðið hjá Inspired by Iceland.

Þar á síðunni er hægt að láta útbúa mynd af landsliðstreyjunni með nafni og sérnúmeri þátttakenda og taka um leið þátt í samkeppni um miða á upphafsleik liðsins gegn Argentínu 16. júní  í Moskvu.