Hatrið sigraði með yfirburðum

Hatari sigraði Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardagskvöld með yfirburðum, með lagi sínu Hatrið mun sigra. Lagið verður því framlag Íslands í Eurovision í Tel Aviv í Ísrael í ár. Hatari fékk samtals 134.492 atkvæði en Friðrik Ómar, með lag sitt Hvað ef ég get ekki elskað?, hlaut 98.551 atkvæði. RÚV.is greinir frá.

Í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn Söngvakeppninnar kemur fram að Hatari hafði mikla yfirburði eftir fyrri símakosningu, þegar sveitin fékk rúm 47.000 atkvæði og Friðrik Ómar hlaut 25.365 atkvæði.  Dómnefnd hafði helmingsvægi og þar hafði Hatari einnig nokkra yfirburði, var með 24.891 atkvæði en Friðrik Ómar með rúm 21 þúsund atkvæði.  

Í seinni símakosningunni héldu yfirburðir Hatara áfram, þegar sveitin hlaut rúm 62.000 atkvæði en Friðrik Ómar 52.000. Þegar öll atkvæði höfðu verið lögð saman var niðurstaðan sú að Hatari fékk rúmlega 134.000 atkvæði en Friðrik Ómar rúmlega 98.000.

Hatari naut líka mikilla vinsælda hjá sérstakri dómnefnd, þar sem sjö dómarar af níu völdu lagið best. Hinir tveir dómararnir settu lagið hins vegar í neðsta sæti.