Hatrammar deilur á rauðarárstíg: 8 lögregluþjónar og sérsveitamenn mættu á svæðið

Íbúar flýja úr fjölbýlishúsi í Reykjavík vegna óláta og fíkniefnaneyslu leigjanda á vegum félagsbústaða í húsinu. Brugðist var við óskum íbúa með því að fá Securitas til að fylgjast reglulega með. Íbúi segir félagsbústaði hafa hundsað málið mánuðum saman. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Þar kom einnig fram að félagsbústaðir eiga eina íbúð í íbúðarhúsi á Rauðarárstíg. Í húsinu eru sex íbúðir samtals. Í kjallaranum býr maður sem hefur að sögn íbúa haldið þeim nánast í gíslingu og fólk þori jafnvel ekki út úr íbúðum sínum. Þá hafa nágrannar mannsins oft hringt á lögregluna vegna fíkniefnaneyslu hans og kærustu, til dæmis um síðastliðin jól.

Í fréttum stöðvar 2 var sýnt skjáskot af einni kvörtun:

„Hann er á ganginum ber að ofan með ranghugmyndir og algjörlega út úr því. Við hringjum aftur í lögguna seinna.“

\"\"

Þá kom einnig fram að brotist hafi verið inn í sameign og fatnaði stolið af börnum. Í eitt skipti hafi svo átta lögreglumenn komið á svæðið, þar á meðal sérsveitarmenn. Íbúi í húsinu segir að þetta hafi allt hafist fyrir rúmu ári.

Gyða Elín Bergs íbúi í húsinu sagði í samtali við Stöð 2: „Þá tók hann æðiskast á stigaganginum og hótaði íbúum og braut allar dyrabjöllur í húsinu sem féló borgaði svo fyrir. [...] Við höfum kvartað ótrúlega mikið og beðið þau um að taka á málunum og svo fjarlægja hann. Þau hafa gjörsamlega hundsað okkur mánuðum saman og logið að okkur.“

\"SigrúnÞá var rætt við Sigrúnu Árnadóttur hjá félagsbústöðum. Sigrún sagði: „Þetta er vandrataður millivegur. Sumu fólki finnst við ganga of hart fram.“

Sigrún segir að árlega sé tíu leigusamningum að meðaltali sagt upp vegna brota á húsreglum en leigjendur félagsbústaða eru um tvö þúsund og sex hundruð. Sigrún vísar til persónuverndarlaga, hún geti ekki svarað því hvort búið sé að rifta leigusamningi við manninn. Þá segir Sigrún að málið sé í ferli og vildi ekki svara hvort styttist í að manninum yrði vísað úr íbúðinni.

Þá hefur verið brugðið á það ráð að fá vaktmenn á vegum Securitas til fylgjast reglulega með húsinu en það er eitt af því sem félagsbústaðir gerðu til að slá á ótta íbúa. Játaði Sigrún að það væri alla jafna ekki gert og segir það sitt um hversu alvarlegt þetta mál er. Því var Sigrún ósammála og sagði:

„Ég veit ekki endilega hvort að ber að túlka þetta þannig. Við vorum að koma til móts við óskir íbúa.“

Gyða Elín sagði íbúa hrædda: „Það eru allir gjörsamlega hræddir. Leigjendur eru búnir að segja upp samningum. Við hin sem eigum íbúðir, þorum ekki út og erum bara fangar á okkar eigin heimili,“ sagði Gyða.

Félagsbústaðir  hafa tekið þá ákvörðun að selja íbúðina í kjallaranum. Sigrún sagði að endingu:

„Í ljósi þess sem þarna hefur gengið á teljum við ekki rétt að okkar leigjandi fari þarna inn. Við viljum ekki bjóða þeim uppá það.“