Starfsfólk sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs, nú þegar hátíðarnar ganga í garð og Íslendingar njóta þess besta í viðurgjörningi og veisluhöldum.
Óhætt er að segja að fólkið í landinu hafi tekið starfsemi Hringbrautar vel á þessu ári sem senn er að líða - og er ástæða til að þakka þær viðtökur allar, enda eru þær mikil hvatning til frekari dáða á nýju ári.
Áhorf á sjónvarpsstöðina Hringbraut hefur aukist ár frá ári, allt frá því hún var sett á laggirnar í febrúar 2014, en dagskrárstefnan sem helgast af upplýsandi og fræðandi íslensku efni höfðar greinilega til fjölda fólks.
Fyrir utan fasta myndversþætti Hringbrautar hefur mikill metnaður ríkt í dagskrárgerð hennar á árinu, jafnt heima sem víða um lönd og álfur. Í þeim efnum hefur stöðin haslað sér völl svo eftir hefur verið tekið.
Má þar nefna heimildarþáttaröð um sögu verkalýðsbaráttunnar á Íslandi frá byrjun síðustu aldar, fræðsluþáttaröðina Súrefni um umhverfismálin á Íslandi, svo og nýja 18 þátta röð um sögu og sérstöðu fjallaskálanna á Íslandi.
Þá hefur dagskrárgerðar- og tæknifólk stöðvarinnar verið víðförult á árinu, sinnt þáttagerð um tannlæknaferðir Íslendinga til Ungverjalands og strandhögg Íslendinga á austurströnd Spánar svo eittvað sé nefnt.
Þótt Hringbraut sé ekki stór að vöxtum er starfsfólks hennar stolt af verkum sínum. Og það er sælla að gefa en þiggja; stöðin kostar jú landsmenn ekki krónu - og þess þá síður ríkissjóð, enda gefur hún allt sitt efni.
Og áfram verður haldið á nýju ári, með öfluga íslenska dagskrárgerð að leiðarljósi sem verður jafnt aðgengileg í sjónvarpi og á vefnum hringbraut.is, sem geymir allt efni stöðvarinnar, en hann verður nú efldur á nýju ári.
Um leið og starfsfólk Hringbrautar þakkar öllum hundruðum viðmælanda sinna og þúsundum áhorfenda fyrir samstarfið, hjálpsemina og hvatninguna, óskar hún þeim sömu árs og friðar - og hlakkar til komandi árs.